Landsbanki nýrra tíma

Á árinu 2020 kynntum við nýja stefnu undir yfirskriftinni Landsbanki nýrra tíma. Við byggjum á trausti og munum halda áfram að þróast til að gera þjónustu okkar sífellt betri.

Kjarni stefnunnar er gagnkvæmt traust og mannleg sýn á bankaviðskipti. Við setjum ánægju viðskiptavina í fyrsta sæti, höldum áfram öflugri uppbyggingu tæknimála og þróun stafrænna lausna. Okkar markmið er að auðvelda viðskiptavinum lífið með því að gera fjármálin aðgengilegri á sama tíma og við eflum ráðgjöf og fræðslu. Innleiðing á árangursdrifnari menningu styrkir reksturinn og skapar aukið frumkvæði. Við ætlum að halda áfram að veita framúrskarandi þjónustu.

Ánægðir viðskiptavinir – stöðug framför – árangur

Stoðir stefnunnar eru þrjár og í þeim er fjallað um áherslur sem tengjast mismunandi þáttum í rekstri bankans, viðskiptavinum, innviðum og mannauði.

Fyrsta stoðin snýst um ánægju viðskiptavina. Þar er áherslan á að einfalda viðskiptavinum lífið og sýna frumkvæði. Það gerum við með því að þróa einfaldar, stöðugt aðgengilegar lausnir og með því að nýta gögn til að veita viðskiptavinum persónulega og faglega ráðgjöf.

Önnur stoðin fjallar um nauðsyn stöðugra framfara. Hún vísar til þess að bankinn starfar í kviku umhverfi og þarf að tileinka sér hagkvæmar leiðir til að aðlagast og ná árangri. Við viljum að starfsemi bankans verði stöðugt snjallari og gögn bankans betur nýtt, m.a. til að bjóða upp á sérsniðna þjónustu. Reksturinn skal vera traustur og öruggur og sérstök áhersla lögð á upplýsingaöryggi. Þá viljum við vera í fremstu röð hvað varðar sjálfbærni.

Þriðja stoðin fjallar um árangur viðskiptavina og starfsfólks. Við lítum svo á að árangur viðskiptavina sé okkar árangur og því sé mikilvægt að leggja áherslu á árangursdrifna vinnumenningu. Við leggjum jafnframt áherslu á að byggja upp vinnustað framtíðarinnar. Fjölbreyttur og sveigjanlegur vinnustaður hvetur starfsfólk til að vinna saman og þróa hugmyndir yfir í lausnir.

Traustur banki

Traust er lykilþáttur í starfsemi okkar, hvort sem horft er til samskipta við viðskiptavini, samstarfsfólk eða gagnvart rekstri bankans og starfsemi. Viðskiptavinir eiga að geta treyst því að við séum til staðar og að rekstur bankans sé í öruggum höndum.

Skýr markmið til næstu tíu ára

Í stefnumótuninni voru sett metnaðarfull lykilmarkmið til næstu tíu ára. Árangur bankans verður metinn reglulega á tímabilinu og áherslur skerptar eða þeim breytt eins og þörf krefur. Unnið verður eftir mælanlegum markmiðum til að hægt sé að meta árangurinn af nýrri stefnu bankans.

Lykilmarkmiðin snúast um að innan tveggja ára geti viðskiptavinir afgreitt sig sjálfir, alltaf, hvar og hvenær sem er. Við ætlum að auka þjónustutekjur með því að bjóða upp á nýjar, virðisaukandi lausnir fyrir viðskiptavini bankans. Við vinnum að því að gera Landsbankann að leiðandi banka á Norðurlöndunum þegar horft er til fjármálaþjónustu framtíðarinnar.

Vefkökur

Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur