Fjármögnun

Fjármögnun Landsbankans grundvallast á þremur meginstoðum - innlánum frá viðskiptavinum, fjármögnun á markaði og eigin fé. Lánshæfiseinkunn Landsbankans er metin BBB/A-2 með stöðugum horfum af S&P Global Ratings.

Innlán frá viðskiptavinum

Stærstur hluti fjármögnunar Landsbankans er í formi innlána frá viðskiptavinum sem námu 793 milljörðum króna í árslok 2020 og eru að mestu leyti óverðtryggð og óbundin. Innlán frá viðskiptavinum jukust um 86 milljarða króna á árinu. Verðtryggð innlán námu 126 milljörðum í lok árs 2020 og hækkuðu um 5 milljarða króna frá fyrra ári.

Fjármögnun á markaði

Skuldabréfaútgáfa á erlendum mörkuðum og erlendar lántökur

Erlendar skuldabréfaútgáfur eru veigamesta stoðin í fjármögnun bankans á markaði. EMTN-skuldabréfarammi bankans er 2 milljarðar evra að stærð og var stækkaður úr 1,5 milljörðum evra á árinu 2017. Fyrstu skref í útgáfum undir rammanum voru tekin haustið 2015 og hefur bankinn verið reglulegur útgefandi á erlendum skuldabréfamörkuðum frá þeim tíma.

Í febrúar gaf bankinn út skuldabréf til rúmlega 4 ára að fjárhæð 300 milljónir evra gegn endurkaupum á skuldabréfum að fjárhæð 300 milljónir evra á gjalddaga í mars 2021. Í október gaf bankinn út skuldabréf til 3 ára að fjárhæð 500 milljónir sænskra króna og 500 milljónir norskra króna.

Í nóvember voru skuldabréf á gjalddaga að fjárhæð 2.600 milljónir sænskra króna og 300 milljónir norskra króna. Eftirstöðvar skuldabréfanna voru greiddar upp á gjalddaga.

Í árslok 2020 námu erlendar skuldabréfaútgáfur samtals 212 milljörðum króna og jukust um 2 milljarða króna á árinu. Lántökur í erlendri mynt námu 19 milljörðum króna á sama tíma.

Sértryggð skuldabréfaútgáfa

Útgáfurammi bankans fyrir sértryggð skuldabréf er 250 milljarðar króna og var stækkaður úr 200 milljörðum króna á árinu 2020. Útgáfa sértryggðra skuldabréfa undir rammanum er fyrst og fremst ætluð til að fjármagna íbúðalánasafns bankans og til að draga úr fastvaxtaáhættu. Á árinu 2020 voru regluleg útboð á sértryggðum skuldabréfum þar sem áður útgefnir flokkar voru stækkaðir auk þess sem tveir nýir flokkar voru gefnir út á árinu, óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 25 og verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 26. Enginn flokkur var á gjalddaga á árinu. Samningar um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af bankanum voru endurnýjaðir á árinu. Sértryggðar skuldabréfaútgáfur bankans námu 189 milljörðum króna í árslok 2020 og nam aukningin 49 milljörðum króna á árinu.

Víxlaútgáfa

Engin víxlaútboð voru haldin á árinu en bankinn hefur sett upp 50 milljarða króna útgáfuramma fyrir víxla og skuldabréf. Tveir víxlaflokkar voru á gjalddaga á árinu 2020, samtals að fjárhæð 3.605 milljónir króna. Engir víxlar voru útistandandi í árslok 2020.

Víkjandi útgáfa

Víkjandi útgáfa í krónum undir útgáfuramma bankans fyrir víxla og skuldabréf nam 5,7 milljörðum króna í árslok og víkjandi útgáfa undir EMTN-ramma bankans nam 100 milljónum evra á sama tíma. Báðar útgáfurnar teljast til eiginfjárþáttar 2, námu samtals 21,4 milljörðum í árslok 2020 og lækkuði um 2,3 milljarða króna á árinu.

Hlutafé

Eigið fé bankans nam 258,3 milljörðum króna í árslok 2020 og hækkaði um 11 milljarða króna á árinu. Enginn arður var greiddar til hluthafa á árinu 2020. Eiginfjárhlutfall Landsbankans var 25,1% í árslok 2020.

Lánshæfismat

Frá ársbyrjun 2014 hefur lánshæfi Landsbankans verið metið af alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækinu S&P Global Ratings. Í apríl 2020 var lánshæfismat bankans lækkað og er nú BBB/A-2 með stöðugum horfum.

 

Lánshæfismat Standard & Poor's
Langtíma BBB
Skammtíma A-2
Horfur Stöðugar
Útgáfudagur Apríl 2020
Vefkökur

Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur